Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. febrúar 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola óskaði Arter og eiginkonu hans alls hins besta
Arter og Guardiola ræða saman eftir leik Bournemouth og Manchester City í gærkvöldi.
Arter og Guardiola ræða saman eftir leik Bournemouth og Manchester City í gærkvöldi.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, fór beint til Harry Arter leikmanns Bournemouth eftir að leik liðanna lauk í gær.

Arter og eiginkona hans Rachel eiga von á barni á næstu dögum. Árið 2015 var dóttir Arter andvana þegar hún kom í heiminn en leikmaðurinn er með húðflúr á sér til minningar um hana.

Guardiola talaði við Arter eftir leikinn og óskaði honum og Rachel alls hins besta fyrir fæðinguna sem er framundan.

„Hann óskaði mér og konu minni alls hins besta í vikunni. Þetta var ótrúlega fallega gert," sagði Arter um spjall sitt við Guardiola.

„Ég ber gríðarlega virðingu fyrir honum. Ég horfði á Barcelona liðin hans og þú sérð hversu gott Manchester City liðið hans var í kvöld. Að mínu mati er hann besti stjóri í heimi. Ég held að enginn komist nálægt því sem hann hefur afrekað."

„Ég ber virðingu fyrir því að hann hafi sagt þetta við mig og ég tók við þessari kveðju með bros á vör."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner