Harry Winks hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham. Þetta er í þriðja sinn á innan við ári sem skrifar hann undir nýjan samning við félagið sem hann hefur verið hjá síðan hann var sex ára gamall.
Winks skrifaði undir samninga í mars og september í fyrra.
Winks skrifaði undir samninga í mars og september í fyrra.
Í meðfylgjandi myndbandi lýsir Winks yfir ást sinni á félaginu og talar um hve þakklátur hann er Mauricio Pochettino knattspyrnustjóra.
Winks er sífellt að koma sér í stærra hlutverk hjá Tottenham en á þessu tímabili hefur hann oft komið inn af bekknum til að koma með ferska fætur inn á miðsvæðið.
Athugasemdir