þri 14. febrúar 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Líkir Zlatan við Cantona
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: GettyImages
Christophe Galtier, þjálfari franska liðsins St Etienne, segir að Zlatan Ibrahimovic minni sig á Eric Cantona fyrrum leikmann Manchester United.

Zlatan hefur skorað tuttugu mörk á tímabilinu en hann verður í eldlínunni gegn St Etienne í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Galtier sagði: „Þegar ég horfi á Ibra þá hugsa ég um Eric Cantona. Stórir persónuleikar. Hann getur orðið reiður á einni sekúndu og sagt stóra hluti en síðan segir hann bara, 'allt í lagi, ég sagði þetta.'

„Fyrst og fremst er hann ótrúlegur leikmaður. Hann skorar. Mörk, mörk, mörk. Margir sögðu að hann ætti eftir að eiga erfitt uppdráttar á Englandi en hann er nú þegar kominn með 20 mörk."

„Hann er frábær atvinnumaður. Hann setur fordæmi. Ég held að þess vegna hafi þeir fengið hann til Manchester. Eins og Cantona."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner