Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. febrúar 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Mane: Sjálfstraustið er komið aftur í liðið
Mynd: Getty Images
Saido Mane segir að slæma kaflanum sé lokið hjá Liverpool núna og að liðið sé komið með sjálfstraust á nýjan leik.

Liverpool sigraði Tottenham 2-0 á laugardaginn eftir að hafa einungis unnið einn af fyrstu tíu leikjum ársins í öllum keppnum.

Mane skoraði bæði mörkin á laugardaginn en Liverpool saknaði hans í janúar þegar hann var í Afríkukeppninni með Senegal.

„Við áttum þrjár eða fjórar erfiðar vikur en við erum búnir með þær núna," sagði Mane.

„Það er of snemmt að segja til um það hvað gerist en sjálfstraustið er komið aftur í liðið núna."
Athugasemdir
banner
banner