Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. febrúar 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Næsta mark Martial kostar Rauðu djöflana 8.5 milljónir
Mynd: Getty Images
Anthony Martial er búinn að skora 24 mörk fyrir Manchester United frá komu sinni til félagsins fyrir einu og hálfu ári.

Martial átti góðan leik í 2-0 sigri gegn Watford um helgina þar sem hann skoraði og lagði upp og var valinn maður leiksins.

Rauðu djöflarnir mæta franska félaginu AS Saint-Etienne í fyrsta leik í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn.

Martial kom á sínum tíma til Man Utd fyrir 36 milljónir punda, en nokkrar bónusgreiðslur voru í kaupsamningnum og mun sú fyrsta vera greidd á næstu vikum eða um leið og franska sóknarmanninum tekst að gera sitt 25. mark.

„Ég ætla að gera allt til að skora gegn Saint-Etienne. Þeir voru erkifjendur mínir þegar ég var hjá Lyon," sagði Martial.
Athugasemdir
banner
banner
banner