Fulham og Nottingham Forest eigast þessa stundina við í ensku B-deildinni í knattspyrnu og þegar þetta er skrifað er staðan 2-2.
Okkar maður, Ragnar Sigurðsson, var í byrjunarliði Fulham en hann entist þó ekki lengi á vellinum.
Ragnar þurfti að fara meiddur af velli strax á 28. mínútu leiksins. Ekki liggur ljóst fyrir um hvernskonar meiðsli er að ræða eða hvort þau séu alvarleg.
Þetta er annar miðvörður Íslands til þess að meiðast á örfáum dögum en Kári Árnason, sem stendur vaktina með Ragnari í vörn íslenska landsliðsins, brákaði rifbein í leik á Kýpur á dögunum.
Athugasemdir