Brasilíski hægri bakvörðurinn Fabinho hefur verið í viðræðum við Arsenal, Barcelona og bæði Manchester-félögin ef marka má orð föður hans.
Fabinho er 23 ára gamall og er lykilmaður hjá Monaco, sem trónir á toppi frönsku deildarinnar um þessar mundir, þremur stigum fyrir ofan PSG.
Fabinho er 23 ára gamall og er lykilmaður hjá Monaco, sem trónir á toppi frönsku deildarinnar um þessar mundir, þremur stigum fyrir ofan PSG.
„Við erum búnir að tala við Manchester United, Manchester City, Arsenal og Barcelona," sagði Joao, faðir Fabinho, við J+1.
„Okkur líkar það sem Mourinho er að gera hjá Man Utd, en við höfum einnig veikan blett fyrir Man City."
Athugasemdir