Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. febrúar 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Butland: Hættið að trúa öllu sem þið lesið
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Jack Butland segir það rangt að hann hafi beðið um að yfirgefa herbúðir Stoke City.

Sögusagnir hafa verið á kreiki um það, en Butland ákvað að fara á Twitter og segja frá því að bull væri að ræða.



„Áður en þessu verður dreift frekar, þá vil ég koma því á framfæri að ég hef ekki beðið félagið um að fá að fara," skrifar Butland. „Ég er einbeittur á að hjálpa félaginu að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. Hættið að trúa öllu því sem þið lesið."

Butland þykir einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar og hefur verið orðaður við Arsenal og Liverpool síðustu mánuði.

Stoke er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner