Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 14. febrúar 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Zlatan skoðar hús í Los Angeles
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, er byrjaður að leita að húsi í Los Angeles samkvæmt frétt ESPN.

Sterkur orðrómur er um að Zlatan gangi í raðir LA Galaxy þegar samningur hans hjá Manchester United rennur út í sumar.

ESPN segir þó að Zlatan sé ekki búinn að ákveða sig endanlega og möguleiki sé á að hann verði áfram í Evrópu.

Hinn 36 ára gamli Zlatan er hins vegar byrjaður að skoða hús í Bel Air og Beverly Hills hverfum ásamt eiginkonu sinni Helena Seger.

Zlatan sneri aftur eftir slæm hnémeiðsli í nóvember síðastliðnum en hann meiddist aftur í desember. Reiknað er með að hann verði klár í slaginn á nýjan leik á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner