Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. mars 2018 22:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte: Erum að tala um besta leikmann í heimi
Conte spjallaði við Messi eftir leik.
Conte spjallaði við Messi eftir leik.
Mynd: Getty Images
„Lionel Messi gerði gæfumuninn í þessu einvígi," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea, eftir 3-0 tap gegn Barcelona í kvöld.

Messi skoraði tvö af mörkum Barcelona í kvöld, en hann jafnaði einnig metin fyrir Börsunga í fyrri leiknum sem endaði 1-1.

„Við erum að tala um besta leikmann í heimi."

„Við vorum nokkuð óheppnir í þessum tveimur leikjum. Eftir besta augnablik okkar í dag skoruðu þeir."

„Við sjáum ekki eftir neinu, leikmennirnir gáfu allt í verkefnið. Við áttum ekki skilið að tapa 3-0. Við áttum að fá vítaspyrnu þegar brotið var á Marcos Alonso en við verðum að halda áfram og undirbúa okkur fyrir leikinn á laugardaginn gegn Leicester."



Athugasemdir
banner
banner
banner