Serbneski miðju og varnarmaðurinn Igor Taskovic vill spila áfram á Íslandi á komandi tímabili.
„Ég nýt þess ennþá að spila fótbolta og vil vera á Íslandi," sagði Taskovic við Fótbolta.net.
Hinn 36 ára gamli Taskovic spilaði með Víkingi R. frá 2013 til 2016 og var fastamaður í liðinu.
Taskovic gekk til liðs við Fjölni síðastliðinn vetur og lék sjö leiki með liðinu í Pepsi-deidlinni fyrri hluta sumars.
Í júlí fór Taskovic í Reyni Sandgerði sem féll úr 3. deildinni síðastliðið haust en hann spilaði sex leiki þar.
Athugasemdir