Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. mars 2018 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liðin sem eru í 8-liða úrslitunum
Sevilla verður í 8-liða úrslitunum.
Sevilla verður í 8-liða úrslitunum.
Mynd: Getty Images
Barcelona og Bayern München tryggðu sér síðustu farseðlana í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld.

Barcelona vann 3-0 gegn Chelsea og Bayern fór létt með Besiktas, vann samanlagt 8-1.

Nú er ljóst hvaða átta lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar á föstudag.

Fimm ensk lið voru í 16-liða úrslitunum en aðeins tvö þeirra verða í 8-liða úrslitunum. Tvö ítölsk lið verða í pottinum á föstudag., þrjú spænsk og eitt frá Þýskalandi.

Liðin í 8-liða úrslitunum:
Barcelona
Bayern München
Juventus
Liverpool
Manchester City
Real Madrid
Roma
Sevilla



Athugasemdir
banner