Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. mars 2018 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lukaku neitar að hafa gagnrýnt liðsfélaga sína
Mynd: Getty Images
„Sumir leikmenn voru í felum," sagði Romelu Lukaku, sóknarmaður Manchester United, eftir tapið gegn Sevilla í Meistaradeildinni í gær.

Lukaku lýsti yfir óánægju sinni með frammistöðu United í viðtalinu og sagði að Sevilla hefði átt skilið að fara áfram.

Álit margra er að Lukaku hafi verið besti maður United í leiknum í gær en áðurnefnd ummæli hans hafa vakið athygli.

Hann hefur nú komið því á hreint að hann hafi ekki verið að gagnrýna liðsfélaga sína, hann muni aldrei gera það.

„Ég mun aldrei gagnrýna liðsfélaga mína," skrifaði Lukaku á instragram. „Að fara í felur þegar þú ert vonsvikinn í búningsklefanum er fullkomlega eðlilegt."

„Úrslitin eru hörmuleg en við erum Manchester United og munum koma sterkari til baka með ykkar stuðning."


Athugasemdir
banner
banner
banner