Svar Marcos Alonso, leikmanns Chelsea, er hann var spurður að því hvers vegna Chelsea hafði tapað fyrir Barcelona í kvöld var einfalt. „Þeir eru með Lionel Messi," sagði hann.
Messi fór á kostum þegar Barcelona keyrði yfir Chelsea í seinni leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld.
Messi fór á kostum þegar Barcelona keyrði yfir Chelsea í seinni leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld.
„Þeir voru betra liðið þrátt fyrir að við höfum staðið vel í þeim í gegnum þessa tvo leiki."
„Ef við fáum á okkur auðveld mörk og klúðrum færunum okkar, þá verður þetta mjög erfitt gegn þessu liði."
Leikurinn í kvöld fór 3-0.
„Við vorum óheppnir í fyrstu tveimur mörkunum, við skutum þrisvar í stöngina og fengum fullt af færum. Þegar þú tapar þarftu að æfa betur og verða betri."
Athugasemdir