Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. mars 2018 14:36
Magnús Már Einarsson
Tottenham segir að Kane verði klár í næsta mánuði
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að framherjinn Harry Kane verði klár í slaginn á nýjan leik í næsta mánuði.

Kane meiddist á ökkla gegn Bournemouth á sunnudaginn og í gær bárust fréttir að hann yrði frá keppni frram í maí og væri tæpur fyrir HM í sumar.

Tottenham hefur blásið á þær sögusagnir en í yfirlýsingu frá félaginu í dag kemur fram að Kane muni hefja æfingar að nýju í næsta mánuði.

Hinn 24 ára gamli Kane meiddist einnig tvívegis á ökkla á hægri fæti á síðasta tímabili.

Kane er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni í augnablikinu ásamt Mohamed Salah en þeir hafa báðir skorað 24 mörk. Sergio Aguero kemur þar á eftir með 21 mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner