Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 14. apríl 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Austurfrétt 
Búi hættir sem þjálfari Leiknis F.
Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði
Búi Vilhjálmur Guðjónsson, þjálfari Leiknis Fáskrúðsfirði, hefur sagt upp störfum af persónulegum ástæðum en Austurfrétt greinir frá þessu.

Þetta staðfesti Magnús Ásgrímsson, formaður deildarinnar, við Austurfrétt um helgina. Magnús segir Búa hafa sagt upp vegna „breyttra forsendna hjá honum og fjölskyldunni."

Magnús sagði málefni eftirmanns „í vinnslu" en viðskilnaðurinn við Búa væri „í góðu".

Búi tók við Leikni af Izudin Daða Dervic síðastliðið haust.

Keppni í 3. deildinni hefst eftir rúman mánuð en Leiknir mætir Hetti í fyrsta leik þann 17. maí.
Athugasemdir
banner
banner
banner