Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 14. apríl 2014 21:03
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Leicester nær titlinum
Leicester City er nokkrum stigum frá titlinum
Leicester City er nokkrum stigum frá titlinum
Mynd: Getty Images
Reading 1 - 1 Leicester City
1-0 Alex Pearce ('16)
1-1 Danny Drinkwater ('33)
Rautt spjald: Mikele Leigertwood, Reading ('86)

Leicester City nálgast Championship titilinn eftir jafntefli á útivelli gegn Reading, sem er í umspilssæti eftir stigið.

Alex Pearce kom heimamönnum í Reading yfir snemma í leiknum en gestirnir frá Leicester voru öflugri og jafnaði Danny Drinkwater leikinn og var staðan jöfn í leikhlé.

Í síðari hálfleik var hart barist en hvorugu liði tókst að skora og var varamaðurinn Mikele Leigertwood rekinn af velli undir lokin en gestirnir nýttu sér það ekki.

Fjórir leikir eru eftir af tímabilinu og er Leicester með sjö stiga forystu á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner