Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 14. apríl 2014 17:40
Elvar Geir Magnússon
Inter vill Torres
Fernando Torres skorar ekki mikið fyrir Chelsea.
Fernando Torres skorar ekki mikið fyrir Chelsea.
Mynd: Getty Images
Framkvæmdastjóri Inter hefur staðfest að ítalska A-deildarfélagið hafi áhuga á að fá spænska sóknarmanninn Fernando Torres.

Torres hefur ekki náð sér á strik síðan Chelsea keypti hann á 50 milljónir punda frá Liverpool.

Torres gengur erfiðlega að skora og hefur misst sæti í byrjunarliði Chelsea. Lundúnafélagið ku vera tilbúið að láta leikmanninn fara.

Marco Fassone, framkvæmdastjóri Inter, segir það ekkert leyndarmál að félagið hafi áhuga á Torres.
Athugasemdir
banner
banner
banner