Reynir S. 1 - 1 ÍR
0-1 Arnór Björnsson ('64)
1-1 Þorsteinn Þorsteinsson ('78)
Rauð spjöld: Magnús Þór Magnússon, ÍR ('1), Atli Guðjónsson, ÍR ('15).
0-1 Arnór Björnsson ('64)
1-1 Þorsteinn Þorsteinsson ('78)
Rauð spjöld: Magnús Þór Magnússon, ÍR ('1), Atli Guðjónsson, ÍR ('15).
2. deildarliðin Reynir Sandgerði og ÍR gerðu 1-1 jafntefli í B-deild Lengjubikarsins í gær.
Breiðholtsliðið varð fyrir áfalli þegar Magnús Þór Magnússon markvörður fékk rauða spjaldið strax á fyrstu mínútu leiksins. Ekki batnaði ástandið þegar fyrirliðinn Atli Guðjónsson fór sömu leið.
ÍR-ingar léku því níu gegn ellefu stærstan hluta leiksins en komust samt yfir á 64. mínútu þegar Arnór Björnsson skoraði.
Reynismenn jöfnuðu á 78. mínútu og jafntefli varð niðurstaðan.
ÍR-ingar unnu riðil-1 en Reynismenn eru úr leik, fengu fimm stig úr fimm leikjum.
Athugasemdir