Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. apríl 2014 16:05
Elvar Geir Magnússon
Lengjubikar - C-deild: Örninn flaug burt með eitt stig
Frosti Bjarnason, leikmaður Kormáks/Hvatar.
Frosti Bjarnason, leikmaður Kormáks/Hvatar.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kormákur/Hvöt 1 - 1 Örninn
0-1 Vífill Traustason ('40)
1-1 Arnar Ingi Ingvarsson ('79)

Einn leikur var í C-deild Lengjubikarsins í gær. Kormákur/Hvöt og Örninn gerðu 1-1 jafntefli á Leiknisvelli.

Vífill Traustason kom Erninum yfir í fyrri hálfleik en þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka jafnaði Arnar Ingi Ingvarsson.

Þegar ein umferð er eftir af riðli-1 er Kormákur/Hvöt með fjögur stig en Örninn tvö. Ljóst er að hvorugt liðið á möguleika á að komast áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner