Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 14. apríl 2014 18:49
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: ISF 
Pique missir líklega af úrslitum bikarsins
Það er skelfilegt fyrir Börsunga að missa Pique á þessum tímapunkti
Það er skelfilegt fyrir Börsunga að missa Pique á þessum tímapunkti
Mynd: Getty Images
Gerard Pique missir líklega af úrslitaleik spænska Konungsbikarsins gegn Real Madrid vegna meiðsla á mjöðm.

Samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Rac1 fór Pique í ítarlega læknisskoðun á mánudaginn og kom í ljós að hann verður líklega ekki tilbúinn fyrir miðvikudaginn.

Barcelona mætir Real í úrslitaleik bikarsins á miðvikudaginn og hefur Tata Martino því ekki úr miklu að moða í varnarlínu liðsins.

Líklegt er að Javier Mascherano og Adriano verði í vörninni en auk þeirra er Carles Puyol nýkominn úr meiðslum og Sergio Busquets gæti verið notaður úr stöðu eins og í tapinu óvænta gegn Granada á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner