Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. apríl 2014 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Puyol: Við myndum deyja fyrir Martino
Puyol segir leikmennina styðja við þjálfarann
Puyol segir leikmennina styðja við þjálfarann
Mynd: Getty Images
Carles Puyol segir leikmenn Barcelona styðja Tata Martino, þjálfara liðsins, og fullyrðir að leikmennirnir myndu deyja fyrir þjálfarann sinn og hann fyrir þá.

Puyol segir sig og samherja sína tilbúna til að gefa allt í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins gegn Real Madrid og síðustu fimm leiki deildarinnar.

Börsungar eru fjórum stigum frá toppliði Atletico Madrid þegar fimm umferðir eru eftir en Real Madrid er í öðru sæti, stigi fyrir ofan Barca.

,,Það er auðveldara að gagnrýna þjálfarann heldur en 25 leikmenn," sagði Puyol.

,,Hann er frábær þjálfari. Við myndum deyja fyrir hann, og hann fyrir okkur.

,,Við höfum klúðrað ýmsu á tímabilinu og erum sjálfir okkar verstu gagnrýnendur. Núna munum við berjast til að vinna úrslitaleikinn (í bikarnum) og síðustu fimm leikina í deild. Við höfum ekki gefið titilinn upp á bátinn."

Athugasemdir
banner
banner