Tim Sherwood, stjóri Tottenham, hefur líkt Christian Eriksen við Dennis Bergkamp fyrrum leikmann Arsenal.
Eriksen skoraði jöfnunarmark Tottenham gegn West Bromwich Albion í viðbótartíma um helgina en Spurs kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir.
Eriksen skoraði jöfnunarmark Tottenham gegn West Bromwich Albion í viðbótartíma um helgina en Spurs kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir.
,,Eriksen er leikmaður sem er ekki hægt að hafa fyrir utan liðið. Hann er eins og Bergkamp," sagði Sherwood.
,,Þú vilt hafa leikmann sem getur nýtt svona færi og þú veist þegar hann fær færi að hann er ískaldur."
,,Um leið og hann leitaði inn á völlinn þá vissi ég að boltinn myndi enda í netinu."
Athugasemdir