Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 14. apríl 2014 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Aduriz og Herrera sáu um Malaga
Aduriz skoraði tvö í kvöld
Aduriz skoraði tvö í kvöld
Mynd: Getty Images
Athletic Bilbao 3 - 0 Malaga
1-0 Aritz Aduriz ('4)
2-0 Aritz Aduriz ('46)
3-0 Ander Herrera ('62)

Athletic Bilbao lagði Malaga af velli í mikilvægum leik þar sem liðið er nú með sex stiga forystu á næsta liði í meistaradeildarbaráttunni.

Aritz Aduriz skoraði fyrsta mark leiksins snemma í fyrri hálfleik og tvöfaldaði forystuna á fyrstu mínútu síðari hálfleiks.

Ander Herrera gerði út um leikinn með þriðja markinu á 62. mínútu en Malaga er sjö stigum frá fallsvæðinu þegar fimm umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner