Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. apríl 2018 07:30
Ingólfur Stefánsson
Aguero ekki með gegn Tottenham
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero verður ekki með Manchester City þegar liðið heimsækir Tottenham í dag.

Aguero meiddist á hné eftir tæklingu Ashley Young í leik liðsins gegn Manchester United um síðustu helgi.

Aguero spilaði 24. mínútur gegn Liverpool í miðri viku en Pep Guardiola segir að hann hafi fundið fyrir hnéinu og hafi ekkert æft síðan.

Guardiola segist einungis vera með 14 leikmenn sem geti spilað leikinn fyrir utan unglingaliðsleikmenn. John Stones er frá vegna meiðsla og þá er Benjamin Mendy ekki í leikæfingu.

City þurfa 5 stig úr síðustu 6 leikjum tímabilsins til þess að tryggja Englandsmeistaratitilinn.
Athugasemdir
banner
banner