Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn fyrir Sönderjyske í góðum sigri í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Sönderjyske fékk Lyngby í heimsókn fyrir framan tæplega 4 þúsund manns. Áhorfendurnir þurftu að láta sér það nægja að sjá aðeins eitt mark en það gerði fyrir Mads Hvilsom á 71. mínútu.
Þessi tvö lið enduðu í neðri hluta deildarkeppninnar og eru núna í baráttu um að fara í umspil um að komast í Evrópukeppni. Ef þau komast ekki þangað fara þau í umspil um að halda sér í deildinni.
Eftir sigur Sönderjyske í dag er það ljóst að liðið er að fara í umspil um sæti í Evrópukeppni og þarf ekki að hafa áhyggjur af falli.

Eggert og félagar eiga enn eftir að leika þrjá leiki í riðlinum
Athugasemdir