Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 14. apríl 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeildin - Böddi löpp velur sitt lið
Liðið hjá Böðvari.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Liðið hjá Böðvari. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Draumaliðsdeild Eyjabita opnaði í síðustu viku en spennan er að magnast fyrir Pepsi-deildina í sumar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Böðvar Böðvarsson fór frá FH til Jagiellonia Białystok í Póllandi í vetur. Böðvar hefur stillt upp sínu draumaliði fyrir sumarið.

„FC Görn er nafnið á mínu liði og er enginn ástæða fyrir því. Í vörninni höfum við Begga plöntu sem mun líma saman Fjölnisleika með undirförlum varnarleik," sagði Böðvar um lið sitt.

„Með honum er Guðmann Þórisson sá geðveiki einstaklingur sem mun öskra svo mikið að KA menn þora ekki að fá á sig mark. Svo er ég að sjálfsögðu með Þórarinn Inga í liðinu, okkar samband var aldrei gott og mun það hjálpa honum andlega að ég fór."

„Á miðjunni er ég með Einar Löpp sem mun fara í mennskuna eftir þetta tímabil. Ásamt honum er ég með tvo unga Birni Snæ og Þorra geir sem eru mínir menn."

„Gísli Eyjólfs er framarlega á miðjunni að stinga honum innfyrir og lúðra honum á markið. Frammi erum við með Elfar Árna, Castillion og Lennon því þar eru mörk."


Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Andri Rúnar Bjarnason velur sitt lið
Orri Sigurður Ómarsson velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner