lau 14. apríl 2018 13:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Giroud: Mikilvægast að gefast aldrei upp
Mynd: Getty Images
Franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud var hetja Chelsea gegn Southampton í dag.

Giroud byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður eftir rétt rúman klukkutíma. Hann var ekki lengi að láta til sín taka og skoraði tvisvar í endurkomu sigri Chelsea.

„Við byrjuðum leikinn ekki eins og við hefðum viljað en í fótbolta hefurðu alltaf tækifæri til þess að stíga upp, að koma til baka. Við sýndum góðan karakter og liðsanda," sagði Giroud eftir að hafa skorað tvö mörk í góðum sigri Chelsea.

„Það mikilvægasta er að gefast aldrei upp, að trúa á gæði okkar og spila okkar leik. Ég er stoltur af því sem við gerðum í dag og stuðningnum sem við fengum."

Chelsea er sjö stigum frá Meistardeildarsæti þegar liðið á eftir að spila fimm deildarleiki.

„Þangað til það er tölfræðilega ómgöulegt þá höfum við trú á því að við getum endað í topp fjórum. Við tökum einn leik í einu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner