Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 14. apríl 2018 14:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Emil fékk korter í níunda tapleiknum í röð
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Cagliari 2 - 1 Udinese
0-1 Kevin Lasagna ('10 )
1-1 Leonardo Pavoletti ('21 )
2-1 Luca Ceppitelli ('84 )

Emil Hallfreðsson fékk að spila í stundarfjórðung þegar Udinese tapaði fyrir Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni.

Emil hefur lítið verið að spila með Udinese á þessari leiktíð, sérstaklega eftir að Massimo Oddo tók við.

Í dag kom Kevin Lasagna, maðurinn líklega með skemmtilegasta nafnið í ítölsku úrvalsdeildinni, Udinese yfir en Cagliari kom til baka á sínum heimavelli og vann 2-1.

Gera má ráð fyrir því að Massimo Oddo verði ekki mikið lengur stjóri Udinese þar sem þetta var níundi tapleikur liðsins í röð. Udinese er í 13. sæti, aðeins sex stigum frá fallsæti. Cagliari er í 14. sæti.
Athugasemdir
banner
banner