Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 14. apríl 2018 21:21
Gunnar Logi Gylfason
Mjólkurbikarinn: GG og KF með auðvelda sigra
Mynd: Hanna Símonardóttir
Öllum leikjum dagsins er nú lokið í Mjólkurbikarnum.

Nökkvi tók á móti KF á Akureyri þar sem Kristófer Andri Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir gestina í fyrri hálfleik. Slobodan Milisic og Þórður Halldórsson fengu báðir rautt spjald í lok fyrri hálfleiks.

Gestirnir bættu við fjórum mörkum í seinni hálfleik og auðveldur 0-6 sigur KF staðreynd.

Á Varmárvelli í Mosfellsbæ tók Álafoss á móti GG frá Grindavík. Gestirnir leiddu 0-2 í hálfleik og komust í 0-3 áður en heimamenn skoruðu eina mark sitt í leiknum.

Viktor Guðberg Hauksson bætti við tveimur mörkum þegar lítið var eftir og endaði leikurinn 1-5 fyrir GG sem er því komið í næstu umferð.

Álafoss 1-5 GG
0-1 Tómas Jónsson (18')
0-2 Orri Freyr Hjaltalín (27')
0-3 Davíð Arthur Friðriksson (65')
1-3 Orri Eyþórsson (75')
1-4 Viktor Guðberg Hauksson (76')
1-5 Viktor Guðberg Hauksson (79')

Nökkvi 0-6 KF
0-1 Kristófer Andri Ólafsson (9')
0-2 Kristófer Andri Ólafsson (20')
0-3 Sjálfsmark (65')
0-4 Aksentije Milisic (69')
0-5 Halldór Logi Hilmarsson (75')
0-6 Tómas Veigar Eiríksson (87')
Rautt spjald: Slobodan Milisic, KF (45'), Þórður Halldórsson, Nökkvi (45')


Athugasemdir
banner
banner
banner