Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. apríl 2018 18:31
Gunnar Logi Gylfason
Pólland: Böddi löpp byrjaði sinn fyrsta leik í tapi
Mynd: Instagram
Böðvar Böðvarsson, eða Böddi löpp eins og hann er oft kallaður, byrjaði inn á í sínum fyrsta leik í pólsku úrvalsdeildinni í dag og spilaði hann allan leikinn.

Lið hans, Jagiellonia Bialystok, tapaði þá 1-2 á heimavelli gegn Górnik Zabrze þar sem öll mörkin voru skoruð eftir 80. mínútu.

Þetta var, sem fyrr segir, fyrsti byrjunarliðsleikur Böðvars í pólsku úrvalsdeildinni en hann fór þangað í febrúar frá uppeldisfélagi sínu, FH.

Eftir leikinn eru Böðvar og félagar í 3.sæti deildarinnar en eiga leik inni á efsta sætið og eru aðeins einu stigi á eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner