Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 17:00
Magnús Már Einarsson
Atli Már: Höfum tapað fyrir 2. flokki KA
Atli Már Rúnarsson.
Atli Már Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Leikmenn Magna fagna sigrinum í gær.
Leikmenn Magna fagna sigrinum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
,,Það kom mér svolítið á óvart eftir þetta að við skyldum landa þessu," sagði Atli Már Rúnarsson þjálfari Magna Grenivík í 3. deild við Fótbolta.net í dag. Magni kom mjög á óvart þegar liðið sigraði KA 2-1 í Borgunarbikarnum í gær.

,,Við vorum búnir að undirbúa okkur vel og maður sá það á strákunum fyrir leik að við gætum þetta. KA er með mjög vel spilandi lið og góða einstaklinga. Við ákváðum samt að setja smá þrýsting á þá í byrjun og koma þeim í opna skjöldu. Ég veit það sjálfur að þegar stór lið mæta minni liðum þá er smá værukærð þó að menn ætli sér það ekki."

,Við byrjuðum leikinn alveg á fullu. Það skilaði okkur tveimur mörkum og við vorum síðan undir það búnir að þeir yrðu meira með boltann. Við hefðum getað fengið fleiri opin færi en þeir voru að fá því að þeir færðu sig framar á völlinn."

Hafa tapað fyrir 2. flokki KA:
Magnamenn hafa ekki mætt KA í vetur en þeir hafa hins vegar leikið við 2. flokk félagsins.

,,Þetta er í fyrsta skipti sem við unnum meistaraflokkinn hjá KA. Við höfum spilað mikið við 2. flokkinn og höfum verið að tapa fyrir þeim. Í æfingaleikjum er maður samt að prófa og skoða ýmislegt."

,,Ég og Bjarni (Jóhannsson, þjálfari KA) vorum búnir að ræða um að spila æfingaleik um daginn en við ákváðum að geyma það. Það er gott samstarf á milli KA og Magna. Við erum vonandi að fá 2-3 leikmenn frá þeim á næstu dögum,"
sagði hinn 41 árs gamli Atli Már en hann er varamarkvörður hjá Magna.

,,Ég verð til taks á varamannabekknum ef Hjörtur (Heimisson) meiðist eitthvað. Hann stóð sig frábærlega í gær."

Keppni í 3. deildinni hefst á laugardaginn en Magni heimsækir Fjarðabyggð. Atli telur að Magni geti gert góða hluti í sumar.

,,Ég er bjartsýnn á það og hlakka til. Standið á mönnum er gott og leikmennirnir eru tilbúnir. Við byrjum á þremur útileikjum svo það reynir svolítið á okkur en við erum undir það búnir."

Snjór á vellinum:
Á morgun verður dregið í 32-liða úrslit í Borgunarbikarnum en þau fara fram eftir tvær vikur. Á Atli einhverja óskamótherja í 32-liða úrslitunum?

,,Ég vil fá eitthvað gott borgarlið úr Reykjavíkunni á vonandi grænum Grenivíkurvelli. Ef við fáum heimaleik þá ætlum við að gera allt til að hafa Grenivíkurvöll kláran þó að það sé snjór á honum núna," sagði Atli Már léttur í bragði að lokum.
Slapp
banner
banner