Spænskir fjölmiðlar segja að svo gæti farið að Marcelo Bielsa, þjálfari Athletic Bilbao, gæti orðið þjálfari Napoli á næsta tímabili.
Framtíð Walter Mazzarri á Stadio San Paolo er talin í óvissu og aðstoðarmaður hans hefur viðurkennt að engin ákvörðun hafi verið tekin um hans framtíð.
Bielsa er anski skrautlegur þjálfari frá Argentínu en hann er á förum frá Athletic. Flestir hafa talið að hann muni halda heim á leið.
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, ku vera aðdáandi hugmyndafræði Bielsa sem leggur höfuðáherslu á sóknarleik.




