Stephen Aziz, fyrrum búningastjóri Manchester City, hefur gagnrýnt Roberto Mancini á Twitter. Staðfest var í gærkvöldi að búið er að reka Mancini sem knattspyrnustjóra City.
Aziz segir að Mancini sé vond manneskja, hrokafullur og mikill eiginhagsmunaseggur
Aziz segir að Mancini sé vond manneskja, hrokafullur og mikill eiginhagsmunaseggur
„Stuðningsmenn sjá ekki hvað gengur á bak við tjöldin. Það var erfitt að fá "góðan daginn" frá honum. Að öðru leyti var frábært að starfa fyrir félagið," segir Aziz.
BBC greinir frá því að stærsta ástæðan fyrir því að Mancini hafi verið rekinn hafi verið slæm samskipti milli hans og stjórnarmanna, starfsmanna og leikmanna. Hann er gagnrýndur fyrir að hafa ekki veitt ungum og efnilegum leikmönnum nægilega athygli.
Ofan á það vann liðið ekki titil þennan veturinn. Brian Kidd mun stýra Man City í tveimur síðustu leikjum tímabilsins en liðið heimsækir Reading í kvöld.



