Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður Vals í Pepsi-deild kvenna, var svekkt eftir 1-0 tap fyrir Breiðablik í kvöld.
,,Þetta var mjög svekkjandi en ég veit það ekki. Þetta var jafn leikur, við fengum fullt af færum, en nýttum ekki og svekkjandi þar sem við áttum að fá víti beint fyrir framan línuvörðinn, en svona er fótboltinn," sagði Dagný.
,,Þegar markvörðurinn fellir Svövu aftan frá og svo hendi á Blikamanninn. Við fengum fullt af færum og við hefðum nýtt þau í fyrri hálfleik þá hefðum við gert út um leikinn."
,,Það var meiri barátta í okkur í seinni, en engin opin færi þannig séð. Það var alls ekkert vanmat og ég spilaði ekki á móti þeim seinast þegar Valur vann stórt, svo að ég var ekki vör við neitt vanmat," sagði hún ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið hér að ofan.
























