Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 14. maí 2013 19:30
Brynjar Ingi Erluson
David Platt hættir sem aðstoðarþjálfari Man City
David Platt, aðstoðarþjálfari Manchester City á Englandi, hefur hafnað tilboði félagsins um að vera áfram.

Roberto Mancini var látinn taka poka sinn hjá Manchester City í gær, en liðið tapaði fyrir Wigan í úrslitaleik FA-bikarsins og þá þótti árangur liðsins í deildinni og Meistaradeild Evrópu ekki vera til fyrirmyndar.

Félagið bauð samt sem áður David Platt, aðstoðarþjálfara liðsins, að vera áfram hjá félaginu, en hann hafnaði tilboðinu.

Hann greindi frá ákvörðun sinni fyrir leikinn gegn Reading sem er í gangi núna, en hann tók við stöðunni upphaflega sumarið 2010.
Slapp
banner