Heimild: Sky
Eden Hazard vonast til að Jose Mourinho taki við Chelsea fyrir næsta tímabil.
Rafa Benítez mun hætta með Chelsea í sumar og sterkur orðrómur er um að Mourinho muni taka við starfinu.
,,Ég myndi vilja fá hann hingað. Mourinho er besti þjálfari í heimi. Allir hér tala um hann," sagði Hazard.
,,Hann er ekki Guð, en næstum því. Leikmennirnir og stuðningsmennirnir elska hann. Ég þarf að bíða og sjá."
,,Ég byrja á að hugsa um að klára tímabilið og síðan fer ég í sumarfrí. Ég mun sjá fréttirnar í fjölmiðlum."


