Reading 0 - 2 Manchester City
0-1 Sergio Aguero ('40)
0-2 Edin Dzeko ('88)
0-1 Sergio Aguero ('40)
0-2 Edin Dzeko ('88)
Manchester City lagði í kvöld Reading í ensku úrvalsdeildinni, 2-0, þar sem þeir Sergio Aguero og Edin Dzeko gerðu mörk gestana.
Sigurinn tryggir City annað sætið í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið er nú 6 stigum á undan Chelsae þegar einn leikur er eftir. Reading var hinsvegar þegar fallið fyrir leikinn og hafði að engu að keppa.
Aguero skoraði fyrra mark leiksins í fyrri hálfleik þegar hann kláraði færi sitt afar vel eftir sendingu frá David Silva.
Bosníumaðurinn Dzeko tryggði síðan sigurinn undir lokinn eftir að Reading hafði tapað boltanum á slæmum stað.
Brian Kidd stýrði City þar með til sigurs eftir að hafa verið tekið tímabundið við stjórn liðsins eftir að Roberto Mancini var rekinn sem stjóri liðsins í gær.


