Arsenal 4 - 1 Wigan
1-0 Lukas Podolski ('11 )
1-1 Shaun Maloney ('45 )
2-1 Theo Walcott ('63 )
3-1 Lukas Podolski ('68 )
4-1 Aaron Ramsey ('71 )
1-0 Lukas Podolski ('11 )
1-1 Shaun Maloney ('45 )
2-1 Theo Walcott ('63 )
3-1 Lukas Podolski ('68 )
4-1 Aaron Ramsey ('71 )
Arsenal sigraði Wigan Athletic með fjórum mörkum gegn einu á Emirates í kvöld, en gestirnir voru líklega enn í sigurvímu eftir sigur í FA-bikarnum um helgina og kláruðu heimamenn í Arsenal þetta á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik.
Lukas Podolski kom Arsenal yfir með skalla strax á 11. mínútu leiksins, en Shaun Maloney tókst að jafna metin rétt fyrir hálfleik úr umdeildri aukaspyrnu.
Það var svo í síðari hálfleik þar sem Theo Walcott byrjaði markaveisluna. Hann skoraði þá laglegt mark áður en Podolski bætti við öðru. Aaron Ramsey skoraði þá fjórða mark heimamanna.
Lokatölur 4-1 á Emirates. Arsenal komið upp í fjórða sætið fyrir lokaumferðina með 70 stig, en Tottenham er í fimmta með 69 stig. Wigan er fallið eftir leiki kvöldsins.
Arsenal: Szczesny, Sagna, Mertesacker, Koscielny, Gibbs, Ramsey, Arteta, Rosicky, Walcott, Cazorla, Podolski.
(Varamenn: Fabianski, Vermaelen, Wilshere, Oxlade-Chamberlain, Monreal, Jenkinson, Gervinho)
Wigan: Robles, Boyce, Scharner, Alcaraz, Espinoza, McManaman, Maloney, McCarthy, McArthur, Kone, Gomez.
(Varamenn: Al Habsi, Caldwell, Watson, Di Santo, Henriquez, Fyvie, Golobart)



