,,Þetta er einn af mínum uppáhalds sigrum og ótrúleg tilfinning," sagði Gunnar Borgþórsson þjálfari kvennaliðs Selfoss sem vann 1-2 sigur á FH í Kaplakrika í kvöld en FH liðið átti urmul dauðafæra í fyrri hálfleik.
,,Við spiluðum eiginlega bara 45 mínútur í dag og það nægði okkur. Þær stóðu sig frábærlega stelpurnar. Það er búið að vera greinilegt stress í fyrstu leikjunum. Það er mikið af ungum stelpum að spila sína fyrstu leiki og það tekur á. Maður þarf að blóðga sig og hrissta af sér stressið. Það er vonandi búið núna."
,,Svona líður okkur best, svona á fótboltinn að vera, það er frábært að íslenskur kvennafótbolti sé orðinn svona."
Michele Dalton markvörður Selfoss liðsins var frábær í leiknum í kvöld og varði hvað eftir annað úr dauðafærum FH liðsins.
,,Já, hún spilaði eins og sannur indíánahöfðingi og dansaði eftir leikinn fyrir okkur og var valin maður leiksins. Frábær leikmaður og mikill karakter. Bæði á æfingum og á vellinum og utan vallar. Hún er svakalega flott."
Nánar er rætt við Gunnar í sjónvarpinu að ofan.























