Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   þri 14. maí 2013 21:40
Brynjar Ingi Erluson
Hlynur Svan: Þær eru æðislegar!
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna, var að vonum ánægður með sigurinn á Völsurum í kvöld, 1-0.

,,Ég er svo sannarlega í skýjunum með þennan sigur, hrikalega flottur sigur, þvílíkur karakter í þessum stelpum. Þær eru æðislegar," sagði Hlynur Svan í kvöld.

,,Við breyttum liðsuppstillingu og fjölguðum aðeins til baka og Valsliðið kom okkur þannig séð ekkert á óvart. Þær ógnuðu okkur þá sérlega með stungum inn fyrir í fyrri hálfleik, við hefðum getað verið skynsamari og stigið þær út en þær voru að sleppa í gegn þarna þrisvar sinnum og þar var Birna alveg meiriháttar í markinu og hélt okkur á fótum í fyrri hálfleik."

,,Þetta 8-1 tap skipti akkurat engu máli og allt annað lið sem spilaði í dag. Það er Íslandsmótið sem telur. Ég tel okkur eiga helling inni og þetta er bara byrjunin, við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni. Við erum búin að tala um það og setja okkur það markmið að vera af alvöru í þessu,"
sagði Hlynur Svan Eiríksson í kvöld.

Hægt er að sjá viðtalið hér að ofan í heild sinni.
Slapp
banner
banner