Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 15:00
Magnús Már Einarsson
Leikmaður Þórs hjálpaði Víkingi Ó. að krækja í leikmann
Guiseppe ,,Joe
Guiseppe ,,Joe" Funicello.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guiseppe ,,Joe" Funicello, leikmaður Þórs, hjálpaði Víkingi Ólafsvík að krækja í króatíska leikmanninn Mate Dujilo.

Mate hefur samið við Ólafsvíkinga en fyrirtæki Joe, Soccerviza, kom Ólafsvíkingum í samband við leikmanninn. Mate og Joe léku saman í Finnlandi á sínum tíma og þekkjast þannig.

,,Ejub (Purisevic) þjálfari Víkings hringdi í mig og var áhugasamur um að heyra um Soccerviza og hvað við gerum," sagði Joe við Fótbolta.net í dag.

,,Ég sagðist vera í sambandi við marga leikmenn og að ég myndi kynna hann fyrir þeim."

,,Ég er ekki umboðsmaður og það eina sem ég geri er að tengja leikmanninn og félagið saman. Hann sagði mér hvernig leikmanni hann var að leita að og ég kom honum í samband við Mate sem varð til þess að hann kom hingað."


,,SoccerViza er að vaxa mikið og félög í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Skotlandi hafa hringt í okkur til að spyrja um leikmenn og viðburði á okkar vegum."

Joe hefur verið í byrjunarliði Þórs í báðum leikjum liðsins í Pepsi-deildinni en hann skoraði sjálfsmark í 3-0 tapi liðsins gegn FH um nýliðna helgi.

Þór og Víkingur Ólafsvík eru nýliðar í Pepsi-deildinni en þau eru bæði án stiga eftir tvær umferðir. Þór mætir KR á fimmtudag á meðan Víkingur Ólafsvík fær Keflavík í heimsókn.
Slapp
banner