Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 14. maí 2013 16:30
Elvar Geir Magnússon
Moyes: Wayne Rooney einn sá besti í heimi
David Moyes segir að Wayne Rooney sé einn af bestu leikmönnum heims. Þetta er í fyrsta sinn sem Moyes tjáir sig um Rooney síðan hann samþykkti að taka við sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Talið er að Moyes og Rooney muni funda í næstu viku um framtíð leikmannsins.

Rooney fór fram á það í síðasta mánuði að vera seldur þar sem hann vill nýjar áskoranir á sínum ferli.

„Ég horfi nú ekki á alla leiki Manchester United en hann er klárlega einn besti leikmaður heims. Ég man eftir tilþrifum hans sem unglingur hjá Everton, hann var ótrúlegur. Við í þjálfaraliðinu trúðum varla því sem hann var að gera," segir Moyes.

Barcelona, Real Madrid og Chelsea hafa ekki sýnt Rooney áhuga og þá er talið líklegast að Bayern München kaupi pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski frá Dortmund. Ef útilokunaraðferðin er notuð virðist aðeins eitt félag eftir sem hefur efni á Rooney og hans launakröfum: Paris Saint-Germain.

PSG hefur sýnt Rooney áhuga en staðan gæti breyst ef Carlo Ancelotti, þjálfari liðsins, verður ráðinn til Real Madrid. Rooney á aðeins tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum. Moyes hefur skráð það sem forgangsatriði að fá framtíð Rooney á hreint.
Slapp
banner