Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, telur ekki hagsmunaárekstra vera að ræða hjá Guiseppe ,,Joe" Funicello, leikmanni félagsins en eins og fram kom á Fótbolta.net í dag hjálpaði hann Víkingi Ólafsvík að krækja í króatíska leikmanninn Mate Dujilo.
,,Þetta er ekkert að trufla mig. Ég las þetta í frétt hjá ykkur, ég hafði ekki hugmynd um þetta enda er ég ekki að velta mér upp úr því hverjum hann er að koma í tengsl við hvaða lið," sagði Páll Viðar við Fótbolta.net síðdegis í dag.
Joe er með fyrirtækið Soccerviza og hann kom Ólafsvíkingum í samband við Mate sem lék með honum hjá félagiu í Finnlandi á sínum tíma.
,,Ég ætla ekki að skipta mér af þessu. Ég hugsa bara um okkar lið og það eina sem við biðjum um er að hann standi sig með okkar liði."
,,Við höfum notið góðs af samböndum hans og ég hef ekkert yfir þessu að kvarta. Hann er í tengslum við fleiri lið en þetta lið. Það er flott ef honum gengur vel og þetta truflar mig ekkert."
,,Ég held að það eigi ekki að skipta mig máli hvaðan leikmennirnir koma eða í gegnum hverja, ég er allavega ekki búinn að hugsa það svoleiðis."


