Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 21:03
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-kvenna: Breiðablik sigraði Val - Selfoss vann FH
Kvenaboltinn
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði sigurmark Blika
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði sigurmark Blika
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Tveimur leikjum í annarri umferð Pepsi-deildar kvenna var að ljúka, en Breiðablik vann meðal annars Val með einu marki gegn engu.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir sá til þess að Breiðablik vann annan leikinn sinn í röð með sigurmarki gegn Völsurum. Leikurinn var afar jafn á Kópavogsvelli, en mark Þórdísar skildi hinsvegar liðin að.

Selfoss vann þá sigur á FH í Kaplakrika. Ashlee Hincks kom heimaliðinu yfir, en Guðmunda Brynja Óladóttir jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Tiana R Brockway sá svo um að tryggja Selfyssingum stigin þrjú með marki undir lok leiksins.

Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net:

Breiðablik 1-0 Valur
1-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('64 )

FH 1-2 Selfoss
1-0 Ashlee Hincks ('27 )
1-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('53 )
1-2 Valorie Nicole O´Brien ('83 )
Slapp
banner