Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-kvenna: ÍBV slátraði HK/Víking - Stjarnan vann Þór/KA
Kvenaboltinn
Shaneka Gordon skoraði þrennu
Shaneka Gordon skoraði þrennu
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Tveir leikir voru að klárast í Pepsi-deild kvenna nú rétt í þessu, en ÍBV fór illa með HK/Víking í Eyjum á meðan Stjarnan sótti sigur á Akureyri.

ÍBV skoraði sjö mörk og fékk á sig tvö er HK/Víkingur kíkti í heimsókn. Shaneka Gordon skoraði tvö mörk með stuttu millibili á sjöundu og níundu mínútu áður en Rosie Sutton bætti við þriðja markinu.

Bryndís Jóhannesdóttir bætti við fjórða markinu áður en Bryndís Hrönn Kristinsdóttir bætti við fimmta en Ana Maria Escribano Lopez skoraði sjötta markið en hún kom frá Barcelona á Spáni.

Íris Dóra Snorradóttir minnkaði muninn fyrir HK/Víking áður en Shaneka Gordon gulltryggði þrennuna. Karen Sturludóttir skoraði þá annað mark gestanna undir lokin í sannkallaðri markaveislu í Eyjum. ÍBV því með þrjú stig eftir tvær umferðir, en HK/Víkingur ekkert.

Stjarnan vann þá Íslandsmeistara Þór/KA á Akureyri. Harpa Þorsteinsdóttir kom gestunum yfir áður en Elva Friðjónsdóttir bætti við öðru. Mateja Zver minnkaði muninn fyrir Þór/KA, en lokatölur 1-2.

Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net:

ÍBV 7-2 HK/Víkingur
1-0 Shaneka Gordon ('7 )
2-0 Shaneka Gordon ('9 )
3-0 Rosie Hutton ('11 )
4-0 Bryndís Jóhannesdóttir ('38 )
5-0 Bryndís Hrönn Kristinsdóttir ('48 )
6-0 Ana Maria Escribano Lopez ('62 )
6-1 Íris Dóra Snorradóttir ('81 )
7-1 Shaneka Gordon ('85 )
7-2 Karen Sturludóttir ('90 )

Þór/KA 1-2 Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir ('11 )
0-2 Elva Friðjónsdóttir ('27 )
1-2 Mateja Zver ('65 )
Slapp
banner
banner