Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 21:45
Elvar Geir Magnússon
Roberto Martinez: Við komum til baka
„Óstöðugleiki í vörninni varð okkur að falli"
Wigan er fallið eftir 4-1 tap gegn Arsenal í kvöld. Ljóst var fyrir leikinn að liðið þyrfti að vinna báða síðustu leiki sína til að eiga möguleika á að halda sér uppi.

„Við höfum fengið of mörg mörk á okkur. Sóknarlega höfum við verið magnaðir, þegar horft er á frammistöðuna tel ég þetta okkar besta tímabil. En meiðslin í öftustu línu er eitthvað sem ég hef ekki kynnst áður," sagði Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan.

„Að hafa fjóra, fimm eða jafnvel sex leikmenn fjarverandi í varnarlínunni og markvörðinn meiddan, fyrirliðann Antolin Alcaraz, Ivan Ramis frá út tímabilið, Ben Watson fótbrotinn, Beusejour, Figueroa.... það hafa verið of miklar hræringar á vörninni og það skapaði vandræði."

Fall Wigan er staðreynd aðeins þremur dögum eftir að liðið náði sögulegum sigri á Manchester City í úrslitaleik bikarsins.

„Þessi hópur á ekki skilið að falla... þó augljóslega fáir þú það sem þú átt skilið í lokin. Sigurinn í bikarúrslitunum gaf okkur von um að klára tímabilið með stæl. Sigurinn í bikarnum mun lifa í minningu stuðningsmanna til æviloka. Fallið í dag er vonbrigði en eitthvað sem við getum lagfært," sagði Martinez.

„Við þurfum að undirbúa okkur fyrir framtíðina. Við höfum átt átta ótrúleg ár í úrvalsdeildinni og þurfum að taka það góða frá síðustu árum, og það er af mörgu að taka. Við munum koma til baka eins og Wigan hefur alltaf gert. Fjárhagsstaða félagsins er frábær, aðstaðan góð og hugmyndafræði fyrir framtíðina."
Slapp