Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 17:09
Hafliði Breiðfjörð
Þórhildur Ólafsdóttir til ÍBV (Staðfest)
Kvenaboltinn
Þórhildur í leik með ÍBV.
Þórhildur í leik með ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhildur Ólafsdóttir hefur snúið aftur í sitt uppeldisfélag ÍBV en þetta var staðfest á vef félagsins í dag.

Þórhildur lék með Þór/KA í fyrra og varð með þeim Íslandsmeistari.

Þórhildur hefur æft af og til með ÍBV í vetur og spilað aðeins með félaginu í æfingaleikjum.

Það verður því mikill styrkur fyrir liðið að endurheimta Þórhildi aftur.

Þórhildur verður ekki í leikmannahóp ÍBV sem mætir HK/Víkingi klukkan 18:00 í dag en kemur inn fyrir leikinn gegn Val á laugardag.
Slapp
banner
banner
banner