Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Hörður Magnússon íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport:
Ætla ekki ad falla í tá gryfju ad dissa Eurovision.Skil ekki mótshaldara í Malmö ad setja Ísland sama kvöld og heil umferd í Pepsi #12stig
Guðmundur Karl Sigurdórsson, sunnlenska.is:
Hvort heitir Fellavöllur í Fellabæ "Fellavöllur" eða "Fellavöllur"? #fellas #goodfellas #vinir #fotbolti
Bradley Simmonds leikmaður ÍBV:
Yndislegur dagur í Vestmannaeyjum, sólin er mætt. Er ennþá að venjast því að það sé lykt af fisk hvert sem ég fer
Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður á RÚV:
Nú er búið að láta alla stjórana fara sem unnu 2011-12 Ch.L, Pr.L, FA Cup, LeageCup & Championship #mancini #erfittlíf #england #molidaxins
Viðar Ingi Pétursson fótboltaáhugamaður:
Var ég sá eini sem tók eftir því að Snæfell vann fótboltaleik 11-0 í gærkvöldi!?!? #umpólun #ádauðamínumáttiégvon
Jóhann Skúli Jónsson fótboltaáhugamaður:
Kemst ekki yfir það hvað það er cool að ef maður skrifar King Eric á wikipedia fer maður beint inná síðuna hans Cantona.
Ólafur Már Sigurðsson golfari:
Ef strákarnir í ÍA myndu nú hlaupa meira! #keeperaðþjálfa
Elvar Geir Magnússon ritstjóri á Fótbolta.net:
Sérstakt að leikmaður í liði með 0 stig hjálpi öðru liði með 0 stig í sömu deild að styrkja sig eða er hann að senda troju-hestinn til Ólafsvíkur?
Andri Júlíusson leikmaður Staal:
Ég æfði með Mate í Alta og hann er ekkert sérstakur, sterkur í loftinu og búið...
Sindri Snær Jensson fyrrum leikmaður Vals:
Ég vil taka það fram að Maggi Gylfa henti mér ekki eitt né neitt. Fór frá Val sjálfviljugur. #Pepsimörkin #bestasætið
Chukwudi Chijindu leikmaður Þórs:
Velti því fyrir mér hvað Rafael og Fabio tala um þessa dagana lol...annar tvíburinn vann deildina en hinn.. til að segja að á góðan hátt...gerði það ekki! #MUFC



