Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 23:04
Fótbolti.net
Umfjöllun: Afturelding vann baráttuleik í Mosó
Kvenaboltinn
Lára Kristín braut ísinn fyrir Aftureldingu
Lára Kristín braut ísinn fyrir Aftureldingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Afturelding vann sér inn sín fyrstu stig í Pepsi-deildinni þetta sumarið í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á nýliðum Þróttar.

Afturelding 2-0 Þróttur
1-0 Lára Kristín Pedersen (75‘)
2-0 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (81‘)

Heimakonur höfðu tögl og hagldir á leiknum í fyrri hálfleik og voru ýmist óheppnar, eða klaufar, að ná ekki að skora á gestina. Færin voru teljandi á fingrum beggja handa og voru þær Telma Hjaltalín Þrastardóttir og Sigríður Þóra Birgisdóttir fremstar í flokki í sóknarleiknum.

Lítið gerðist fram á við hjá Þrótturum sem voru eflaust fegnar þegar flautað var til hálfleiks. Eitthvað náðu gestirnir að stilla saman strengi sína í hálfleik því það var allt annað að sjá þær eftir leikhlé. Meira jafnræði var með liðunum en hvorugu tókst þó að skapa sér alvöru færi.

Það dró svo til tíðinda á 75. mínútu en þá braut Lára Kristín Pedersen ísinn fyrir Aftureldingu. Það kom sending á milli hafsenta og markvarðar Þróttar og misskilningur á milli leikmanna leiddi af sér slaka hreinsun frá Mist markverði en hún lagði boltann í raun beint fyrir fæturnar á Láru Kristínu sem skaut í opið markið frá miðjum vallarhelmingi Þróttar. Klaufalegur varnarleikur en vel klárað hjá Láru.

Sex mínútum síðar innsigluðu Aftureldingarstúlkur 2-0 sigur en markið skoraði Telma Þrastardóttir eftir stungusendingu. Snyrtilega afgreitt hjá Telmu sem var best á vellinum í kvöld.
Slapp
banner
banner
banner